FLIR C5 Hitamyndavél
FLIR C5 hitamyndavélin er sérstaklega handhæg og passar í vasa, enda af svipaðri stærð og farsími. FLIR C5 hitamyndavélin hentar einstaklega vel sem forskoðunarvél, þar sem þarf að gera grófar athuganir í snatri.
FLIR C5 gerir notanda kleift að mæla hita á svæði sem ekki er í beinni augnsýn. Miðpunktur eða svæði á hitamyndinni gerir það að verkum að hægt er að mæla annaðhvort gildi punktsins eða efri og lægri mörk hitamyndar.
Upplausn hitamynda er 160×80 pixels. 3,5″ snertiskjár (320×240 pixels). Hitanæmnin er betri en 0.10°C.
Mælisviðið er frá -20°C til +400°C. Innbyggð myndavél tekur myndir með 640×480 pixel upplausn og býður upp á mynd í mynd eða myndblöndun (Thermal Fusion).
FLIR C5 gefur upp mældan hita á einum stað í mynd, auk þess sem hún sýnir hitasvið á mynd með litum og er lóðréttur hitaskali á hægri hlið skjámyndarinnar.
Hægt er að geyma 5000 myndir á jpeg formi í innra minni.
FLIR C5 er búin:
- LCD 3.5“ snertiskjá
- Upplausn 160×120 pixels
- Hitanæmni betri en 0.10°
- Hitasvið er frá -20°C til +400°C
- Myndblöndun (Thermal Fusion)
- WiFi sendir myndir þráðlaust t.d. í spjaldtölvu, farsíma, tölvu
- 4 klst rafhlöðuending.
- Mynd í mynd, hitamynd ofaná digital mynd
- digital myndavél með 640×480 pixel upplausn
- 3,7V Li-ion polymer hleðslurafhlaða
- FLIR C5 kemur í tösku með rafhlöðu, USB gagna-og hleðslusnúru og frítt aðgengi að FLIR Tools hugbúnaði til eftirvinnslu og skýrslugerðar
Vefur framleiðanda
Tækniupplýsingar