Ljósataska með 6 LED ljósum

Ljósin lýsa 360°og eru fáanleg í gulum, rauðum eða bláum lit. Þessi ljós eru helst notuð þar sem afmarka þarf svæði hratt og örugglega fyrir umferð. Ljósin eru tekin upp úr töskunni og sett á jörðina til að afmarka vinnu/öryggissvæði og leiða umferð örugglega framhjá. Einnig er á ljósinu segulstál. Hleðslutæki fyrir 12-24V tengi í kveikjara og 220V hleðslutæki fylgja. Ljósin eru hlaðin í töskunni.

 

Vörunúmer 12248