Silikon smurfeiti – sprey

Glær silikonfeiti með mikla viðloðun og hágæða smureiginleika.
Hentar vel á legur og lamir og á flesta staði þar sem um er að ræða núning eða snúning.
Hitaþol: -30/+200°C.

Vörunúmer:  BE1684 

Öryggisblað þessarar vöru má finna hér

 

Flokkur: Merki:

Lýsing

Notkunarleiðbeiningar: Hristið brúsann kröftuglega fyrir notkun, allt að 2 mínútur eftir að heyrast fer í blöndunarkúlunni í brúsanum.
Spíss skal vera í 25 cm fjarlægð frá yfirborði.
Eftir notkun skal snúa brúsa á hvolf og úða þar til spíss tæmist.

BE1684 merki

HÆTTA: Veldur húðertingu. Getur valdið sljóleika eða svima.
Eitrað lífi í vatni, hefur langvinn áhrif. Úðabrúsi með afar eldfimum efnum. Þrýstihylki: Getur sprungið við upphitun. Haldið frá hitagjöfum, neistagjöfum, opnum eldi og heitum flötum. – Reykingar bannaðar. Má ekki úða á opinn eld eða annan hita- og neistagjafa. Þrýstihylki: Ekki má gata eða brenna hylki jafnvel þótt þau séu tóm. Gætið þess að anda ekki inn úða/gufu/ýringi. Forðist losun út í umhverfið. Notið hlífðarhanska. Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni ef lasleika verður vart. Hlífið við sólarljósi. Hlífið við hærri hita en 50 °C. Getur myndað sprengifimar blöndur með lofti, sé loftræsting ófullnægjandi.

Innihald: Nafta (úr jarðolíu), vetnismeðhöndlað, létt

GEYMIST ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL.
400 ml