FLIR E54 Hitamyndavél

FLIR E54 er tilvalin til skoðunar og jafnframt til ákvörðunartöku um viðhald á rafmagns og vélarhlutum, með því næst mesta nýtni og gangöryggi með lágmarkskostnaði. FLIR E54 gerir notanda kleift að mæla hita á svæði sem ekki er í beinni augnsýn, án þess að hann þurfi að stofna sér í hættu. Miðpunktur eða svæði á hitamyndinni gerir það að verkum að hægt er að mæla annaðhvort gildi punktsins eða efri og lægri mörk hitamyndar.

Upplausn mynda er 320×240 pixels. 4.0“ Snertiskjár. Hitanæmni er betri en 0.03°C. Mælisvið er frá -20 til +650°C. Innbyggð stafræn myndavél 5.0 Mpixlar gefur möguleika á að vera með mynd í mynd eða myndblöndun (Thermal Fusion).

FLIR E54 gefur upp mældan hita á 1 stað í mynd (mesti/minnsti hiti), mælir mismunahita á milli mæilpunkta. Hægt að stilla hitasvið og láta vél lita mynd ef hiti er meiri eða minni.

Laser bendill sem sýnir miðju skjás á mældum hluta.

Hægt er að tengja ampertöng við E54 yfir BlueTooth svo hægt sé að fá álag strengs kemur inn á hitamynd.

Hægt er að geyma 8 GB af myndum á jpeg formi og sem er svo hægt að færa vandræðalaust inn á tölvupóst, í word eða powerpoint skjal.

FLIR E54 er búin:

  • Stórum LCD 4.0“ snertiskjá, 640×480 upplausn
  • Upplausn 320×240 pixels
  • Hitanæmni betri en 0.03°
  • Hitasvið er frá -20°C til +650°C
  • Laser bendli
  • Myndblöndun (Thermal Fusion)
  • WiFi sendir myndir þráðlaust t.d. í spjaldtölvu
  • Mynd í mynd, hitamynd ofaná digital mynd
  • BlueTooth móttekur upplýsingar frá t.d. ampertöng og rakamæli
  • 1-4x digital zoom
  • 5,0 Megapixla digital myndavél
  • Útskiptanleg rafhlaða
  • FLIR E54 kemur í tösku sem er meðal annars með tvær rafhlöður, hleðslutæki, 8GB SD minniskort og USB kapal. Auk þess sem er hægt að sækja sér FLIR Tools hugbúnaðinn til frekari eftirvinnslu og greininga.

Vefur framleiðanda
Tækniupplýsingar