FLIR K45 Hitamyndavél

FLIR K45 er „first responder“ hitamyndavél og auk þess er hún afar heppileg til að skrásetja aðstæður við bruna sem síðan nýtast til frekari rannsókna á slysstað.

Flir K45 er einstaklega harðgerð hitamyndamél, framleidd til að haldast heil við erfið skilyrði. K45 þolir vel 2-metra fall niður á steinsteypta stétt, er ryk-og vatnsheld IP67 og virkar að fullu upp að +260°C í allt að 5 mínútur.

FLIR K45 gefur upp mældan hita á skjá, sýnir hitalitapallettu og skjámyndin lit þar sem heitustu 20% skjásins eru í lit, en lægra hitastig sýnir fólk og útlínur í gráskala. Vélin geymir allt að 200 JPG myndir í innbyggðu Flash minni auk þess sem hún virkar vel sem leitar-og rattæki fyrir fyrstu viðbragðsaðila sem koma að slysstað.

K45 hefur sjö mismunandi hitamyndaviðmót sem hægt er að stýra í vélinni. Það er auðvelt að skipta um rafhlöður og hlaða, skjárinn er bjartur og hægt að nota hann til að rata eftir og leita í afar reykmettuðum rýmum.

2 ára ábyrgð á rafhlöðum, 5 ára ábyrgð á myndavél og 10 ára ábyrgð á hitaskynjara við skráningu hjá Flir innan 60 daga frá kaupum.

  • LCD 4“ skjá 320×240 punkta upplausn
  • Upplausn 240×180 pixels
  • Vatnsvörn IP67
  • Ending á rafhlöðu: 4 tímar.
  • MSX tæknin, færir saman stafræna mynd og hitamynd
  • Notkunarhitasvið er frá -20°C til +85°C … og upp að +260°C í max 5 mín
  • Mælihitasvið eru forstillt í FLIR Tools fyrir notkun:
      • -20°C til +150°C
      • 0°C til +650°C
  • Stærð: 280x125x120 með rafhlöðu
  • Þyngd: 1100 gr.
  • FLIR K45 kemur í tösku með tveimur rafhlöðum, hleðslutæki, spennugjafa, og USB kapli