FLIR T640 Hitamyndavél

FLIR T640 er tilvalin til skoðunar og jafnframt til ákvörðunartöku um viðhald á rafmagns og vélarhlutum, með því næst mesta nýtni og gangöryggi með lágmarkskostnaði. FLIR T640 gerir notanda kleift að mæla hita á svæði sem ekki er í beinni augnsýn, án þess að hann þurfi að stofna sér í hættu. Miðpunktur eða svæði á hitamyndinni gerir það að verkum að hægt er að mæla annaðhvort gildi punktsins eða efri og lægri mörk hitamyndar.

Upplausn mynda er 640×480 pixels. 4.3“ Snertiskjár. Hitanæmni er betri en 0.03°C. Mælisvið er frá -40 til +2000°C. Innbyggð stafræn myndavél 5.0 Mpixlar gefur möguleika á að vera með mynd í mynd eða myndblöndun (MSX).

FLIR T640 gefur upp mældan hita á 3 stöðum í mynd (mesti/minnsti hiti), mælir mismunahita á milli mæilpunkta. Hægt að stilla hitasvið og láta vél lita mynd ef hiti er meiri eða minni.

Laser bendill sem sýnir miðju skjás á mældum hluta.

Hægt er að tengja ampertöng við T640 yfir BlueTooth (Meterlink) svo hægt sé að fá álag strengs kemur inn á hitamynd.

Hægt er að geyma 8 GB af myndum á jpeg formi og sem er svo hægt að færa vandræðalaust inn á tölvupóst, í word eða powerpoint skjal.

5 ára ábyrgð á rafhlöðum, 2 ára ábyrgð á myndavél og 10 ára ábyrgð á hitaskynjara við skráningu hjá Flir innan 60 daga frá kaupum.

FLIR T640 er búin:

  • 120°gráðu snúnings linsu og stórum LCD 4.3“ snertiskjá
  • Upplausn 640×480 pixels
  • UltraMax – fjórfaldar punkta upplausn, virkjað í valmynd vélar og unnið í Flir Tools.
  • Sjálfvirkur fókus / handvirkur
  • Hitanæmni betri en 0.035°
  • Hitasvið: –
    • -40°C til +150°C
    • +100°C til +650°C
    • +300°C til +2000°C
  • Laser bendli
  • WiFi sendir myndir þráðlaust t.d. í spjaldtölvu
  • Mynd í mynd, hitamynd ofan á digital mynd (MSX)
  • BlueTooth móttekur upplýsingar frá t.d. ampertöng
  • 1-8x digital zoom
  • 0 Megapixla digital myndavél
  • 2 forritanlegir takkar
  • Útskiptanleg rafhlaða
  • FLIR T640 kemur í tösku sem er meðal annars með tvær rafhlöður, rafhlöðuhleðslutæki, hleðslutæki, 8GB SD minniskort, Video kapall, hálsól og USB kapall (Auk þess fylgir FLIR Tools+ hugbúnaðinn til frekari eftirvinnslu og greininga).

Vefur framleiðanda

Tækniupplýsingar