Lýsing
Notkunarleiðbeiningar: Undirlag skal vera fitulaust, hreint og þurrt. Mælt er með möttun yfirborðs. Sléttið ójöfnur með fylliefni. Hristið brúsann kröftuglega fyrir notkun, allt að 2 mínútur eftir að heyrast fer í blöndunarkúlunni í brúsanum. Úðið til reynslu á lítt áberandi stað. Spíss skal vera í 25 cm fjarlægð frá yfirborði. Haldið brúsa á hreyfingu við úðun. Eftir notkun skal snúa brúsa á hvolf og úða þar til spíss tæmist. Snertiþurrt eftir 15 mínútur. Fullþornað eftir u.þ.b. 25 mín. (fer eftir þykkt). Má lakka yfir með flestum gerðum lakks.
HÆTTA: Veldur alvarlegri augnertingu. Endurtekin snerting getur valdið þurri eða sprunginni húð. Getur valdið sljóleika eða svima. Úðabrúsi með afar eldfimum efnum. Þrýstihylki: Getur sprungið við upphitun. Haldið frá hitagjöfum, neistagjöfum, opnum eldi og heitum flötum. – Reykingar bannaðar. Má ekki úða á opinn eld eða annan hita- og neistagjafa. Þrýstihylki: Ekki má gata eða brenna hylki jafnvel þótt þau séu tóm. Gætið þess að anda ekki inn úða/gufu/ýringi. Notið augn-/ andlitshlífar. EF um váhrif er að ræða eða ef lasleika verður vart: Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ eða lækni. Geymist á vel loftræstum stað. Umbúðir skulu vera vel luktar. Hlífið við sólarljósi. Hlífið við hærri hita en 50 °C. Fargið innihaldi/íláti hjá viðurkenndri spilliefnamóttöku. Getur myndað sprengifimar blöndur með lofti, sé loftræsting ófullnægjandi.
Inniheldur: Aseton, n-bútýl asetat.
GEYMIST ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL.