VRS kerfi
ÍSMAR GPS LEIÐRÉTTINGAKERFI VRS
Við hjá Fálkanum Ísmar höfum sett upp leiðréttingarkerfi á Íslandi sem er kallað VRS kerfi (Virtual Reference System). Í Byrjun var kerfið byggt upp á 4 stöðvum á Suðvesturhorni landsins en Ísmar hefur reglulega verið að bæta við stökum innhringistöðvum víða um land.
GPS stöðvar þessar senda upplýsingar (um t.d. staðsetningu og tungla stöðu) inn í miðlægan tölvubúnað hjá Ísmar sem reiknar út og heldur utan um hnit og útreikning á grunnlínum. VRS reiknar út skekkjur í sendingum gervihnatta á öllu svæðinu sem GPS stöðvar umlykja með mjög mikilli nákvæmni. VRS kerfi vinnur á GPS tunglum og GNSS tunglum.
Mælingamenn þurfa ekki lengur að stilla upp Base til að vinna út frá, heldur hringja inn í VRS kerfi í gegnum GPRS gátt. Við það sparast mikill tíma við uppsetningu á Base og ferðatíma að og frá Base til vinnusvæðis. Hægt er að mæla með fullri nákvæmni 1-2 cm allt að 25km út fyrir grunnlínu VRS kerfis.eða frá innhringistöð. Og innan við 30cm nákvæmni allt að 80km frá stöð (eftir mælitækjum).
Kostir VRS kerfis:
- Allstaðar sama nákvæmni innan kerfis
- VRS kerfið vaktar sig sjálft á skekkjum innan kerfis
- VRS kerfi safnar RINEX upplýsingum til eftir-á-vinnslu (GPS og GNSS)
- VRS kerfi vinnur líka með GIS – DGPS tækjum til kortagerðar