Lýsing
FLIR E6 PRO er tilvalin til skoðunar og jafnframt til ákvörðunartöku um viðhald á fasteignum og vélarhlutum, með því næst mesta nýtni og gangöryggi með lágmarkskostnaði. FLIR E6 gerir notanda kleift að mæla hita á svæði sem ekki er í beinni augnsýn, án þess að hann þurfi að stofna sér í hættu. Miðpunktur eða svæði á hitamyndinni gerir það að verkum að hægt er að mæla annaðhvort gildi punktsins eða efri og lægri mörk hitamyndar.
Upplausn mynda er 240×180 pixels. 3.5“ skjár. Hitanæmni er betri en 0.06°C. Mælisvið er frá -20 til +550°C. Innbyggð stafræn myndavél gefur möguleika á að vera með mynd í mynd eða myndblöndun (MSX).
FLIR E6 gefur upp mældan hita á 1 stað í mynd (mesti/minnsti hiti), mælir mismunahita á milli mæilpunkta. Hægt að stilla hitasvið og láta vél lita mynd ef hiti er meiri eða minni.
Hægt er að geyma 500 myndir á jpeg formi og sem er svo hægt að færa vandræðalaust inn á tölvupóst, í word eða powerpoint skjal.
FLIR E6 PRO er búin:
- LCD 3.5“ LCD skjár, upplausn á skjá 640 x 480.
- Upplausn 240×180 pixels
- Hitanæmni betri en 0.05°C
- Sjónsvið linsu 33° x 25°.
- Hitasvið er frá -20°C til +550°C
- Myndblöndun MSX (Multi-Spectral Dynamic Imaging)
- Digital myndavél 5 MP.
- WiFi tenging við farsíma/spjaldtölvu í gegnum FLIR Tools appið.
- Flir Ignite skýjalausn.
- Mynd í mynd, hitamynd ofaná digital mynd
- Útskiptanleg rafhlaða, ending á rafhlöðu allt að 4 tímar.
- FLIR E6 PRO kemur í tösku sem er meðal annars með eina rafhlöðu, hleðslutæki og USB kapal. Auk þess sem er hægt að sækja sér FLIR Thermal Studio hugbúnaðinn til frekari eftirvinnslu og greininga.
- Fylgir einnig með á spjöldum:
- Frí FLIR PROTECT extended warranty – total 5-year warranty upon registration within 30 days of purchase.
- Frí FLIR Ignite Pro – 12 mánaða, 100GB geymsla í skýi.
- Frí FLIR Academy – Ex Pro and Thermography Fundamentals online training.